Tilraunaverkefni á Sauðaneshálsi

Um verkefnið

  • wpd er með til skoðunar tilraunaverkefni í vindorku á Sauðaneshálsi í Langanesbyggð.
  • Virkjunarkosturinn er í þróun samhliða virkjunarhugmyndunum Brekknaheiði og Sauðanesháls.
  • Uppbygging tilraunaverkefnis getur aukið framboði raforku og stuðlað að orkuskiptum í Langanesbyggð, ásamt því að stuðla að mikilvægri gagnasöfnun og rannsóknarvinnu um rekstur vindorkuvirkjana á Íslandi.
  • Vindmælingar hafa verið í gangi síðan í október 2022.
  • Gert er ráð fyrir að tilraunaverkefnið muni samanstanda af tveimur vindtúrbínum, með allt að 9,9 MW uppsett afl.
  • Skilað var inn matsskyldufyrirspurn fyrir tilraunaverkefnið til Skipulagsstofnunnar í janúar 2026. Þar eru kynntir tveir valkostir fyrir virkjunarhugmyndina.
  • wpd skilaði inn matsskyldufyrirspurn til Skipulagsstofnunar og var hún birt í ársbyrjun 2026, matsskyldufyrirspurn má finna hér.
  • Í janúar 2026 var haldinn opinn íbúafundur í Þórshöfn þar sem bæði matsáætlun fyrir virkjunarhugmyndirnar Brekknaheiði og Sauðanesháls voru kynntar ásamt matsskyldufyrirspurn fyrir tilraunaverkefnið á Sauðaneshálsi.
  • HMS gaf einnig út álit sitt á matsskyldufyrirspurn fyrir tilraunaverkefnið á Sauðaneshálsi, en þar var farið fram á að verkefnið þyrfti að undirganga umhverfismat. Að auki varð breyting á lögum verndar- og orkunýtingaráætlunar haustið 2026, þá má sérstaklega nefna að virkjanir með vindtúrbínum yfir 30 metra hæð falla undir ferli rammaáætlunar. En vegna þessara atriða er ekki lengur talið fýsilegt að halda áfram með tilraunaverkefnið á Sauðaneshálsi.

Upplýsingar um verkefnið

Valkostur 1 Valkostur 2
Fjöldi vindtúrbína: 2 stk. 2 stk.
Tegund: Vindorkuvirkjun Vindorkuvirkjun
Hæð með blöð í efstu stöðu: 150 m 180 m
Afl hverrar vindtúrbínu: 4,26 MW 7,0 MW
Uppsett heildarafl: 8,52 MW Takmarkað við 9,9 MW
Orkuvinnslugeta: 39,2 GWst/ári 45,3 GWst/ári
Staðsetning: Langanesbyggð  Langanesbyggð