Brekknaheiði

Um verkefnið

  • wpd er með til skoðunar virkjunarhugmynd á Brekknaheiði í Langanesbyggð.
  • Virkjunarhugmynd á Brekknaheiði hefur verið til athugunar frá september 2020.
  • wpd tekur við sem þróunaraðili verkefnisins í júlí 2022.
  • Virkjunarhugmyndin hefur verið nefnd Brekknaheiði og var send inn til verkefnastjórnar rammaáætlunar 2020. Ath. Kennistærðir í rammaáætlun sýna alltaf alger hámörk virkjunarhugmynda.
  • Vindmælingar hafa verið í gangi síðan í október 2022.
  • Gert er ráð fyrir að vindorkuvirkjunin muni samanstanda af 47 vindtúrbínum, hver verði að hámarki 7,2 MW og 210m hámarkshæð. Samanlagt er ráðgert að uppsett afl verði að hámarki 338,4 MW. Uppfærð gögn voru send til verkefnastjórnar rammaáætlunar 26.05.2025.
  • wpd skilaði inn matsáætlun til Skipulagsstofnunar og var hún birt í ársbyrjun 2026, matsáætlun má finna hér.
  • Í janúar 2026 var haldinn opinn íbúafundur í Þórshöfn þar sem bæði matsáætlun fyrir virkjunarhugmyndirnar Brekknaheiði og Sauðanesháls voru kynntar ásamt matsskyldufyrirspurn fyrir tilraunaverkefnið á Sauðaneshálsi.
  • HMS (Húsnæðis-, mannvirkja, og skipulagsstofnun) gaf út álit sitt á matsáætlun vegna virkjunarhugmyndanna Brekknaheiði og Sauðanesháls og mun wpd taka mið af því áliti í vinnu sinni við umhverfismat verkefnanna.
  • HMS gaf einnig út álit sitt á matsskyldufyrirspurn fyrir tilraunaverkefnið á Sauðaneshálsi, en þar var farið fram á að verkefnið þyrfti að undirganga umhverfismat. Að auki varð breyting á lögum verndar- og orkunýtingaráætlunar haustið 2026, þá má sérstaklega nefna að virkjanir með vindtúrbínum yfir 30 metra hæð falla undir ferli rammaáætlunar. En vegna þessara atriða er ekki lengur talið fýsilegt að halda áfram með tilraunaverkefnið á Sauðaneshálsi.
  • Umfang verkefnanna hefur breyst töluvert síðan þróun hófst og af þeirri ástæðu var sett fram upplýsingaskjal þar sem dregnar eru helstu upplýsingar um þær ólíku sviðsmyndir sem nú eru til skoðunar, auk mögulegrar nýtingar þeirrar orku sem framleidd yrði. Það er okkur hjá wpd umhugað að allar upplýsingar séu aðgengilegar íbúum sveitarfélagsins og öðrum, þá sér í lagi vegna viðhorfskönnunar sem er á döfinni á vegum sveitarfélagsins í Langanesbyggð. Hér er hægt að nálgast upplýsingaskjalið, til að fá betri mynd af stöðu verkefnisins.

 

Upplýsingar um verkefnið

Fjöldi vindmylla: Allt að 47
Tegund: Vindorkuvirkjun
Hæð með spaða í efstu stöðu: Allt að 210 m
Afl hverrar vindmyllu: Allt að 7,2 MW
Uppsett heildarafl: Allt að 338,4 MW
Orkuvinnslugeta: Allt að 1364 GWh/ári
Staðsetning: Langanesbyggð