Ákvörðun HMS um tilraunaverkefnið á Sauðaneshálsi

Þann 26. janúar 2026 lagði wpd fram matsskyldufyrirspurn til HMS (áður Skipulagsstofnun) um tilraunaverkefni í vindorku á Sauðaneshálsi, um 5 km austan við Þórshöfn. Fyrirhugað tilraunaverkefni samanstendur af tveimur vindtúrbínum sem staðsettar væru á Sauðaneshálsi í Langanesbyggð, um 5 km austan við Þórshöfn, og hefðu samtals allt að 9,9 MW uppsett afl.

Helsti tilgangur verkefnisins er að auka framboð raforku á fáeinum árum og stuðla að orkuskiptum í Langanesbyggð. Tilraunaverkefnið myndi einnig stuðla að mikilvægri gagnasöfnun og rannsóknarvinnu á rekstri vindorkuvirkjana á Íslandi til samanburðar við reynslu wpd af rekstri þeirra á Norðurlöndum.

Matsskyldufyrirspurnin fór í fjögurra vikna samráðsferli í Skipulagsgátt, en wpd hélt jafnframt íbúafund á Þórshöfn á meðan á samráðsferlinu stóð. Íbúafundurinn var vel sóttur og átti wpd þar mikilvægt samtal við íbúa Langanesbyggðar um tilraunaverkefnið, sem og frekari fyrirhugaða uppbyggingu fyrirtækisins í vindorku á svæðinu.

Þann 22. apríl 2026 birti HMS ákvörðun sína um að tilraunaverkefnið væri háð fullu umhverfismati, sem felur í sér umfangsmiklar umhverfisrannsóknir sem taka að lágmarki tvö ár að framkvæma og draga úr fjárhagslegum fýsileika verkefnis af þessari stærð . wpd kærði ákvörðun HMS til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og óskaði eftir því að ákvörðun HMS yrði endurskoðuð, sem nefndin hafnaði.

Þann 28. júní 2026 voru jafnframt gerðar breytingar á lögum nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun) þar sem virkjunarhugmyndir í vindorku sem hafa meira en 30 m heildarhæð voru felldar undir lögin.

Ákvörðun HMS og ofangreindar breytingar á lögum sem fella tilraunaverkefnið undir rammaáætlun hafa því áhrif á metnaðarfulla tímalínu wpd um framkvæmd verkefnisins, sem og fýsileika þess eins og staðan er í dag. Þótt niðurstaðan sé ekki sú sem wpd óskaði eftir þakkar fyrirtækið íbúum og sveitarstjórn Langanesbyggðar fyrir gott samtal um verkefnið.

Í áframhaldandi þróun wpd í Langanesbyggð er nú unnið að frekara samráði með sveitarfélaginu um stærri virkjunarhugmyndir á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi, og stefnt að upphafi umhverfisrannsókna vegna þeirra virkjunarhugmynda þegar aðgangur að landi hefur verið tryggður.