Upplýsingaskjal virkjunarhugmyndanna Brekknaheiði og Sauðanesháls

wpd tók við þróun virkjunarhugmyndanna Brekknaheiði og Sauðanesháls í júlí 2022, en verkefnin höfðu verið í þróun frá 2019. Umfang verkefnanna hefur breyst töluvert síðan þá og af þeirri ástæðu höfum við hjá wpd sett saman upplýsingaskjal þar sem dregnar eru helstu upplýsingar um þær ólíku sviðsmyndir sem nú eru til skoðunar, auk mögulegrar nýtingar þeirrar orku sem framleidd yrði. Það er okkur hjá wpd umhugað að allar upplýsingar séu aðgengilegar íbúum sveitarfélagsins og öðrum, þá sér í lagi vegna viðhorfskönnunar sem er á döfinni á vegum sveitarfélagsins í Langanesbyggð.

wpd setti fram matsáætlun í ársbyrjun 2026 og er undirbúningur rannsókna vegna umhverfismats komin af stað. En auk umhverfismats þarf verkefnið að vera sett í nýtingarflokk af rammaáætlun og þá þurfa önnur tilskilin leyfi að liggja fyrir frá leyfisveitingaraðilum og sveitarfélaginu Langanesbyggð. Virkjunarhugmyndirnar Brekknaheiði og Sauðanesháls er skilað inn til rammaáætlunar í stærstu mögulegri mynd til þess að hafa möguleika á að aðlaga þær seinna meir, út frá niðurstöðum umhverfismats. Fyrirhugaðar virkjanir yrðu reistar og gangsettar í áföngum eftir ólíkum sviðsmyndum í samræmi við orkuþörf svæðisins. Sveitarfélagið getur haft áhrif í lögbundnu samráðsferli á vegum verkefnastjórnar rammaáætlunar en í afstöðu sinni getur sveitastjórn látið í ljós sína skoðun og þarf hún ekki að takmarkast við einfalt samþykki eða synjun virkjunarhugmyndanna, heldur getur hún einnig falið í sér lýsingu á ásættanlegu umfangi þeirra.

Upplýsingaskjalið tekur fyrir þær ólíku sviðsmyndir sem koma til greina í verkefnunum á þessu stigi þróunar:

Sviðsmynd A:

Virkjunarhugmyndirnar Brekknaheiði og Sauðanesháls í fullri nýtingu

  • 74 vindtúrbínur
  • 210 metra heildarhæð
  • Staðsettar á lóðunum Sóleyjarvellir, Hraunkot, Hóll og Staðarsel

kort

Sviðsmynd B:

Virkjunarhugmyndin Sauðanesháls hefur verið dregin saman en Brekknaheiði helst óbreytt, minnkuð nýtni

  • 56 vindtúrbínur
  • 150 metra heildarhæð
  • Staðsettar á lóðunum Sóleyjarvellir og Hraunkot

kort

Sviðsmynd C:

Virkjunarhugmyndin Brekknaheiði hefur verið dregin saman. Miðlungs nýtni

  • 24 vindtúrbínur
  • 180 metra heildarhæð
  • Staðsettar á lóðinni Sóleyjarvellir
  • Mögulegt fyrir fyrsta fjárfestingaráfanga í tengslum við upphaflega orkunotkun í Finnafirði

kort

Hér er einnig hægt að nálgast frekar upplýsingar um virkjunarhugmyndirnar Brekknaheiði og Sauðanesháls

Hægt er að hafa samband fyrir frekari upplýsingar á netfanginu info@wpd.is