Matsskyldufyrirspurn vegna tilraunaverkefnis á Sauðaneshálsi

wpd hefur lagt fram matsskyldufyrirspurn til Skipulagsstofnunar. Matsskyldufyrirspurnin er unnin af wpd og tekur til tilraunaverkefnis vegna tveggja vindtúrbína á Sauðaneshálsi. Matsskyldufyrirspurn var birt á Skipulagsgátt þann 26. janúar 2026.

Tilraunaverkefnið er staðsett á Norðausturlandi, í Langanesbyggð, wpd stefnir á að byggja allt að 9,9 MW vindorkuvirkjun á Sauðaneshálsi, um 5 km austan við Þórshöfn. Fyrirhuguð vindorkuvirkjun samanstendur af tveimur vindtúrbínum og er helsti tilgangur verkefnisins að auka framboð raforku og stuðla að orkuskiptum í Langanesbyggð. Fyrirhuguð framkvæmd myndi einnig stuðla að mikilvægri gagnasöfnun og rannsóknarvinnu um rekstur vindorkuvirkjana á Íslandi til samanburðar við reynslu wpd af rekstri þeirra á Norðurlöndum.

Matsskyldufyrirspurn í heild sinni má nálgast hér.