Mýtur um vindorku

Mikill árangur hefur náðst með vindorku á heimsvísu líkt og tölfræði frá Alþjóðaorkumálastofnuninni (IEA) gefur til kynna. Vindorka getur orðið mikilvægur orkugjafi í hefðbundnum iðnaði sem nú er keyrður á jarðefnaeldsneyti, því hún getur komið í stað kola- og gasorkuvera.  Rafvæðing í samgöngum dregur einnig saman þörfina á notkun jarðefnaeldsneytis sem verður til þess að Ísland verði minna háð öðrum ríkjum sem selja okkur jarðefnaeldsneyti. Vegna þess hve gríðarlega stór markaðurinn er fyrir jarðefnaeldsneyti kemur ekki á óvart að vindorka hefur orðið fyrir skipulögðum herferðum sem miða að því að breiða út rangar upplýsingar um orkugjafann. Skiljanlega geta áhyggjur komið vegna stórra vindorkuvirkjana, en við sjáum að neikvæðar tilfinningar, svo sem ótti og reiði er oft niðurstaða þegar ýtt hefur verið undir rangfærslur á samfélagsmiðlum þá oft með aðstoð gervigreindar.

Hér að neðan má finna upplýsingaefni sem sett hefur verið fram af traustum aðilum í orkugeiranum, þar sem vitnað er í áreiðanlegar heimildir. Efnið tekur fyrir ýmis atriði varðandi vindorku sem oft eru misskilin. Við hvetjum til þess að kynna sér efni þessara aðila til að fá betri og dýpri skilning á vindorkugeiranum.

WindEurope, evrópsk hagsmunasamtök vindorkugeirans (upplýsingar á ensku):

Dis and misinformation – Wind Energy Myths vs Facts: Evidence-Based Answers

Renewables Finland, finnsk hagsmunasamtök vind- og sólarorkugeirans (upplýsingar á finnsku – vinsamlegast notið þýðingarmöguleika vafrans):

Faktapaperit tuulivoimasta – Suomen uusiutuvat ry

Green Power Sweden, sænsk hagsmunasamtök vind- og sólarorkugeirans (upplýsingar á sænsku – vinsamlegast notið þýðingarmöguleika vafrans):

Vindkraft – Green Power Sweden

Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi:

Spurt og svarað um vindorku – Samorka

Ef spurningar vakna, þá sérstaklega varðandi okkar verkefni á vegum wpd Ísland ehf, er hægt að hafa samband á info@wpd.is