Brekknaheiði

Um verkefnið

  • wpd er með til skoðunar virkjunarhugmynd á Brekknaheiði í Langanesbyggð.
  • Virkjunarhugmynd á Brekknaheiði hefur verið til athugunar frá september 2020.
  • wpd tekur við sem þróunaraðili verkefnisins í júlí 2022.
  • Virkjunarhugmyndin hefur verið nefnd Brekknaheiði og var send inn til verkefnastjórnar rammaáætlunar 2020. Ath. Kennistærðir í rammaáætlun sýna alltaf alger hámörk virkjunarhugmynda.
  • Vindmælingar hafa verið í gangi síðan í október 2022.
  • Gert er ráð fyrir að vindorkuvirkjunin muni samanstanda af 47 vindtúrbínum, hver verði að hámarki 7,2 MW og 210m hámarkshæð. Samanlagt er ráðgert að uppsett afl verði að hámarki 338,4 MW. Uppfærð gögn voru send til verkefnastjórnar rammaáætlunar 26.05.2025.

Upplýsingar um verkefnið

Fjöldi vindmylla: Allt að 47
Tegund: Vindorkuvirkjun
Hæð með spaða í efstu stöðu: Allt að 210 m
Afl hverrar vindmyllu: Allt að 7,2 MW
Uppsett heildarafl: Allt að 338,4 MW
Orkuvinnslugeta: Allt að 1364 GWh/ári
Staðsetning: Langanesbyggð